Fréttir: Eiríkur þykir kynþokkafullur !

Eins og venjulega heyrast jákvæðar og bjartsýnar fréttir af keppendum okkar í Eurovision, það er undantekning í ár. Flutningur Eiríks Haukssonar þykir hrífandi en það eru kyntöfrar hans sem helst eru til umræðu í tengslum við framlag Íslendinga.

Kynþokki Eiríks Haukssonar er mikið til umræðu meðal fjölmiðla- og áhugafólks á Evróvisjón í Helsinki. „Það er alltof mikið af einhverjum píslum þarna, Íslendingurinn er eini sem geislar af alvöru karlmennsku á sviðinu. Slíkt hefur lengi vantað," varð Ninu Talmén, finnskri blaðakonu, að orði í samræðum blaðamanna og áhugamanna um keppendur í fjölmiðlahöll keppninnar. Undir þau orð tóku aðrir heilshugar undir og kinkuðu kolli til samþykkis. Ein kona lét sér það þó ekki nægja heldur æpti upp yfir sig á ensku með sænskum hreim. „Já, hann er svo ótrúlega sexy."

Nú skulum við vona að Eiki verði nógu sexy fyrir Evrópu og komist áfram á morgun !


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband